Starfsemi Nýju Avalon miðstöðvarinnar

Í Nýju Avalon miðstöðinni fer fram dagskrá mánuðina september til júní ár hvert. Þar ber mest á heilunarþjónustum sem eru að meðaltali þrjá sunnudaga í mánuði. Einnig er heilunarkvöld og námskeið einkum tengd heilun og hugleiðsluiðkun. Samtökin fá reglulega gesti erlendis frá, í flestum tilfellum frá öðrum miðstöðvum samtakanna sem halda ýmis námskeið og fyrirlestra.

 

Dagskrá miðstöðvarinnar janúar til júní 2012

Heilunarþjónustur. Sérhver þjónusta hefur sitt eigið þema. Áhersla er lögð á heilun jarðarinnar og mannkynsins í gegnum hugleiðslu og ákallanir á mismunandi orku og eiginleika. Í lok þjónustanna fá þátttakendur áruhreinsun og einstaklingsheilun nema í þeim sem eru merktar með stjörnu**. Þjónustur merktar með** fara fram í Kirkju hins upprisna lífs. Þær eru með tvær hugleiðslur og er sú síðari heilunarhugleiðsla.

Hópheilun. Fimmtudagana 23. febrúar og 26. apríl kl. 20:00. Dagskrá kvöldsins samanstendur af stuttum upplestri á efni eftir Anöndu Töru Shan og samræðum. Að því búnu geta þátttakendur lagst út af á dýnu og fengið hópheilun. Eldey Huld Jónsdóttir og Helga Guðnadóttir veita heilunina.

Wesakdagar. Dagana 4. til 6. maí verða haldnir Wesakdagar að Sólheimum í Grímsnesi. Dagskráin sem verður auglýst síðar samanstendur m.a. af fyrirlestrum, hugleiðslum, samveru og heilunarþjónustu sem haldin er á fullu tungli í nautsmerki. Þá fer Wesakhátíðin fram á innri sviðum en hún er árlegur hápunktur andlegarar viðleitni Helgistjórnarinnar. Nánari upplýsingar og skráning ásamt bókun í herbergi er á netfangið newavalon@simnet.is

ATH: Bænabók liggur frammi í þjónustum og á heilunarkvöldum til blessunar þeim sem eiga nafn sitt ritað í hana. Það er aðeins gert með samþykki viðkomanda.

 

Dagskrá á vegum félagsmanna.

Fyrirlestur. Fimmtudaginn 15. mars kl. 20:00 verður Sævar Hreiðarsson skógfræðingur með fyrirlestur. Hann mun fjalla um moltugerð/compost o.fl. auk þess að svara spurningum. Aðgangur er ókeypis.

Jóhanna af Örk. Miðvikudaginn 30. maí kl. 20:00 er dagur Jóhönnu af Örk haldinn hátíðlegur undir leiðsögn Gerðar Jónsdóttur. Jóhanna af Örk, sem einnig gengur undir nafninu mærin frá Orleans, stendur fyrir réttlæti. Hún veitir okkur innblástur til þess að skapa jafnvægi á öllum sviðum lífsins; í líkama, tilfinningum og hugsunum, og í samskiptum við annað fólk. Aðgangur er ókeypis.

 

Erlendir gestir miðstöðvarinnar

Ann Phillis heilari, sjáandi og fyrirlesari frá Ástralíu verður með dagskrá undir yfirskriftinni Iceland Renewal Journey í Nýju Avalon miðstöðinni og á Akureyri í páskavikunni. Ann hefur yfir 25 ára reynslu í heilun, fyrirlestra- og námskeiðshaldi. Upplýsingar um dagskrána má finna undir hnappnum fréttir efst á síðunni og á heimasíðu Ann Philiis goldenpathways.net

Fyrirspurnir um dagskrá miðstöðvarinnar, vinsamlega sendið póst á newavalon@simnet.is

 

Dagskrá janúar-júní 2012

 

Janúar

Sunnud. 29.  kl. 10:15   Uppstigningarþjónusta**

 

Febrúar

Sunnud. 5.    kl. 10:15   Hjartaflæði heilunarþjónusta

Sunnud. 12.   kl. 10:15   Maitreyaþjónusta

Fimmtud. 23. kl. 20:00   Hópheilun

Sunnud. 26.  kl. 10:15   Hjartaheilunarþjónusta**

 

Mars

Sunnud. 4.    kl. 10:15   Hjartaflæði heilunarþjónusta

Sunnud. 11.   kl. 10:15   Þjónusta hinnar heilögu Móður**

'

Fimmtud. 15.  kl. 20:00 Fyrirlestur, Sævar Hreiðarsson*

Sunnud. 25.   kl. 10:15  Allra englaþjónusta

Laugard. 31.   kl. ?        Námskeið, Ann Phillis*

 

April

Þriðjud. 3.      kl. ??         Námskeið, Ann Phillis*

Laugard. 7.     kl. ??         Námskeið, Ann Phillis*

Sunnud. 8.      kl. 10:15   Upprisna lífs þjónusta**

Sunnud. 22.    kl. 10:15   Hjartaflæði heilunarþjónusta

Fimmtud. 26.   kl. 20:00   Hópheilun

 

Maí

Föstud. - sunnud. 4.-6. Wesakdagar að Sólheimum Grímsnesi.

Sunnud. 6.    kl. 10:00  Búddaþjónusta** fer fram að Sólheimum Grímsnesi, ath. tilkynna þarf þátttöku.

Sunnud. 20.    kl. 10:15   Hjartaflæði heilunarþjónusta

Sunnud. 27.   kl. 10:15   Uppstigningarþjónusta

Miðvikud. 30.  kl. 20:00   Dagur Jóhönnu af Örk*

 

Júní

Sunnud. 3.    kl. 10:15   Asalahátíð**

Sunnud. 10.   kl. 10:15   Maitreyaþjónusta

 

** dagskrárliðir Kirkju hins upprisna lífs

* dagskrárliðir á vegum félagsmanna eða gesta miðstöðvarinnar

   
   
   

Skrifstofa og bóksala Nýju Avalon miðstöðvarinnar er opin alla virka fimmtudaga frá 2. febrúar til 31. maí kl. 16:30 til 18:00.

ATH. Ofangreindir dagskrárliðir samtakanna eru opnir öllum 16 ára og eldri. Ekki er hleypt inn eftir að dagskrá hefst þ.e. 10 mínútum eftir uppgefinn tíma, nema um sé að ræða fyrirlestur og/eða námskeið. Dagskrárliðir eru ókeypis nema annað sé tekið fram.

Miðstöðin áskilur sér rétt til að breyta dagskránni ef þörf krefur.

iða hugleiðsluna.

Lokuð dagskrá fyrir félagsmenn/hópa innan samtakanna er sem hér segir:


Karmayoga er þriðjudagana 24. janúar, 20. mars, 15. maí kl. 15:30.

Lokuð Alheimsþjónusta er föstudaginn langa 6. apríl kl. 10:15

Regla Lafði Yaosdhara þriðjudaginn 17. apríl kl. 19:00.

Regla systra Magdalenu þriðjudaginn 15. maí kl. 18:00.

Regla hinnar heilögu Móður þriðjudaginn 26. júní kl. 19:00.

 


 

 

 


Nýja Avalon miðstöðin, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík
Sími: 562 4464 | Netfang: